Hrafnkatla
Hvað getum við aðstoðað með?
Hrafnkatla veitir fjölbreytta þjónustu á sviði búsetu, stuðnings, foreldrafræðslu og ráðgjafar fyrir börn, ungmenni og fjölskyldur. Þjónustan skiptist í fjóra flokka og er sniðin að þörfum hvers og eins, með áherslu á öryggi, tengsl og stöðugleika.
Búseta og vistun
Þegar barn eða ungmenni þarf að dvelja utan heimilis, til skemmri eða lengri tíma.
Búsetuúrræði
Við bjóðum upp á einstaklingsbundið búsetuúrræði fyrir börn og ungmenni sem þurfa öruggt og faglegt umhverfi með stöðugum stuðningi. Í búsetuúrræðinu fær einstaklingurinn aðstoð við daglegt líf, virkni og félagsleg samskipti.
Lögð er áhersla á traust samband, stöðugleika og er unnið að auknu sjálfstæði og jákvæðri framtíðarsýn. Umfang stuðnings og þjónustu er ákveðið í samráði við viðkomandi aðila.
Fjölskylduheimili
Fjölskylduheimilið Hrafnkatla er búsetuúrræði sem veitir 12–20 ára ungmennum öruggt og stuðningsríkt heimili. Á heimilinu er pláss fyrir allt að fjögur börn og unnið er út frá tengslamyndandi nálgun og gagnreyndum aðferðum.
Vistun til skamms- og langtíma. Við styðjum ungmenni í skóla, vinnu og félagslífi með gagnreyndum aðferðum og tengslamyndandi nálgun.
Bráðavistun
Við bjóðum bráðavistun fyrir ungmenni allan sólarhringinn, allt árið. Bráðavistun veitir skjól og öryggi í neyð og er hönnuð til að veita öruggt umhverfi þegar þörf er á brýnni aðstoð.
Hvíldar- og sumardvöl
Möguleiki er á reglulegri hvíldar- og sumardvöl, hvort sem er yfir helgi eða viku í senn. Þetta gefur börnum og fjölskyldum þeirra tækifæri til hvíldar í öruggu umhverfi.
Greiningar- og leiðbeiningarvistun
Hrafnkatla býður upp á greiningar- og leiðbeiningarvistun fyrir börn og foreldra sem þurfa stuðning við að takast á við uppeldi. Vistunin hentar foreldrum sem glíma við vanlíðan, áfengis eða vímuefnavanda, þurfa stuðning og leiðbeiningar eða þegar nauðsynlegt er að fylgjast sérstaklega með umönnun, samskiptum og öryggi barna.
Vistun fer fram í íbúð eða herbergi í húsnæði fyrir fjölskyldur, með það að markmiði að skapa öruggt og stuðningsríkt umhverfi þar sem börn og foreldrar geta unnið að framförum saman.
Stuðningur við börn og fjölskyldur
Stuðningur sem fer fram inni á heimilinu eða í nærumhverfi barnsins.
Einstaklingsstuðningur
Við bjóðum upp á einstaklingsstuðning fyrir börn og ungmenni. Stuðningurinn er sniðinn að þörfum hvers barns og fer fjöldi klukkustunda eftir samkomulagi og því sem óskað er.
Markmiðið er að efla sjálfstraust, félagsfærni og samfélagsþátttöku, auk þess að styðja barnið við að takast á við daglegar áskoranir í öruggu og hvetjandi umhverfi.
Foreldrafræðsla og uppeldisráðgjöf
Foreldrafræðsla og uppeldisráðgjöf er sérhæfð þjónusta fyrir fjölskyldur þar sem þörf er á markvissum stuðningi við foreldrahlutverkið. Vinnubrögð byggja á gagnreyndri þekkingu, viðurkenndum faglegum aðferðum og rannsóknum á þroska barna, tengslamyndun, áföllum og foreldrafærni.
Unnið er samkvæmt skýrum markmiðum að því að efla foreldravitund, styrkja foreldra í uppeldishlutverkinu og auka skilning þeirra á þörfum, þroska, líðan og hegðun barna. Foreldrar fá fræðslu, hagnýta leiðsögn og stuðning við að skapa öryggi og fyrirsjáanleika, setja skýr og hlý mörk, byggja upp jákvæð samskipti og bregðast við krefjandi hegðun á uppbyggilegan hátt.
Þjónustan byggist á skipulögðu ferli, reglubundinni eftirfylgd og faglegu mati á framvindu. Í lok þjónustutímabils er unnin greinargerð þar sem framkvæmd þjónustunnar, framvinda, helstu athuganir og faglegt mat á árangri og áframhaldandi stuðningsþörf eru tekin saman.
Þjónustunni er sinnt af fagfólki með menntun og reynslu á sviði foreldrafræðslu, uppeldisráðgjafar, þroskaþjálfunar og uppeldis- og menntunarfræði. Þjónustan er einstaklingsmiðuð og getur farið fram á heimili fjölskyldunnar, í viðtölum eða með lifandi leiðsögn í raunverulegum aðstæðum daglegs lífs.
Stuðnings- og ráðgjafaþjónusta
Hrafnkatla veitir fjölbreytta og sveigjanlega stuðnings- og ráðgjafaþjónustu fyrir börn, ungmenni og fjölskyldur. Starfsmenn geta tekið að sér verkefni samkvæmt óskum og þörfum barnaverndar, félagsþjónustu og annarra samstarfsaðila. Þjónustan getur meðal annars falist í stuðningi á heimili, tímabundinni vistun á heimili, fylgd og stuðningi í ferðalögum, stuðningi við skóla- og frístundastarf og öðrum sértækum verkefnum. Umfang, framkvæmd og markmið þjónustunnar eru aðlöguð að hverju máli.
Eftirlit og umgengni
Hlutlaust mat og utanumhald þegar barnaverndarþjónusta óskar eftir því.
Eftirlit með umgengni
Við bjóðum upp á eftirlit með umgengni með því markmiði að tryggja öryggi barnsins og stuðla að jákvæðri, öruggri og innihaldsríkri gæðastund milli barns og foreldris.
Óboðað eftirlit
Við bjóðum upp á óboðað eftirlit á heimili foreldra og barna þegar þess er óskað. Markmiðið er að tryggja öryggi barnsins og fylgjast með að aðstæður séu viðunandi og í samræmi við þarfir barnsins.
Fósturforeldrar
Sérhæfður stuðningur við þá sem taka að sér börn í fóstur.
Handleiðsla fyrir fósturforeldra
Hrafnkatla býður faglega handleiðslu fyrir fósturforeldra sem annast börn og ungmenni með fjölþætta áfallasögu, tengslavanda, hegðunar- og tilfinningavanda eða aðrar áskoranir sem geta haft áhrif á daglegt líf og samskipti innan fósturfjölskyldunnar.
Handleiðslan miðar að því að styrkja fósturforeldra í hlutverki sínu, auka skilning á hegðun barnsins og þeim þörfum sem geta legið að baki og styðja við uppbyggingu öruggra og stöðugra tengsla. Áhersla er lögð á hagnýtar leiðir til að takast á við krefjandi aðstæður, setja skýr og hlý mörk, stuðla að fyrirsjáanleika og vinna með hegðun út frá þroska, tengslum og fyrri reynslu barnsins.
Sérstök áhersla er lögð á þann veruleika sem fylgir fósturforeldrahlutverkinu. Þar getur meðal annars reynt á samskipti við kynforeldra og aðstandendur, samstarf við barnaverndarþjónustu og aðra fagaðila, umgengni, breytingar á vistun og þær tilfinningalegu áskoranir sem geta fylgt því að annast barn sem hefur upplifað óöryggi eða áföll.
Handleiðslan byggir á víðtækri reynslu af vinnu með börnum og ungmennum með fjölþættan vanda, foreldrasamskiptum og samstarfi innan barnaverndarkerfisins ásamt foreldrafræðslu og uppeldisráðgjöf. Markmiðið er að veita fósturforeldrum faglegt rými til að ræða aðstæður, fá leiðsögn og ígrundun og finna raunhæfar leiðir sem styðja bæði við þarfir barnsins og stöðugleika fósturfjölskyldunnar.
Fyrir fagaðila
Hrafnkatla tekur að sér sérhæfð verkefni fyrir börn, ungmenni og fjölskyldur, bæði tímabundin og til lengri tíma, eftir þörfum hvers máls. Við vinnum með barnaverndarþjónustum, félagsþjónustu sveitarfélaga og öðrum fagaðilum.
Hvernig óska ég eftir þjónustu?
- Fagaðili hefur samband.
- Þarfir barns eða fjölskyldu eru metnar.
- Umfang, markmið og framkvæmd eru skilgreind.
- Þjónusta hefst.
- Reglulegt upplýsingaflæði og eftirfylgd.
- Samantekt eða greinargerð eftir því sem við á.
Hvernig Hrafnkatla getur stutt við fjölskylduna þína
Hrafnkatla veitir foreldrafræðslu og uppeldisráðgjöf ásamt stuðningi inn á heimili með það að markmiði að styrkja foreldra í uppeldishlutverkinu og stuðla að auknum stöðugleika, öryggi og jákvæðum samskiptum innan fjölskyldunnar.
Stuðningurinn er sniðinn að þörfum hverrar fjölskyldu og getur meðal annars falist í fræðslu, ráðgjöf og leiðsögn í daglegum aðstæðum. Unnið er með foreldrum að því að finna raunhæfar leiðir sem nýtast í þeirra eigin aðstæðum, svo sem varðandi rútínu, mörk, samskipti, tilfinningastjórnun, tengsl og viðbrögð við krefjandi hegðun.
Áhersla er lögð á samstarf við foreldra og að byggja á styrkleikum fjölskyldunnar. Markmiðið er að foreldrar fái skýran og hagnýtan stuðning sem hjálpar þeim að efla eigin færni, auka öryggi í uppeldishlutverkinu og skapa börnum sínum fyrirsjáanlegt og styðjandi umhverfi.
Hafðu samband og bókaðu tíma
Hafðu samband við okkur til að fá frekari upplýsingar eða bóka tíma í foreldrafræðslu og uppeldisráðgjöf.
Hafa samband →Um okkur
Hrafnkatla býður upp á margvíslega þjónustu sem miðar að því að styðja börn og ungmenni í öruggu og faglegu umhverfi. Markmið Hrafnkötlu er að efla sjálfstraust, félagsfærni og farsæld einstaklinga og styðja þá í átt að auknu sjálfstæði, ábyrgð og bættum lífsgæðum með framtíðina að leiðarljósi.
María Liv Biglio
Framkvæmdarstjóri
B.Sc. í sálfræði og M.Sc. í mannauðsstjórnun og vinnusálfræði frá Háskólanum í Reykjavík.
Hefur einnig lokið diplómanámi í opinberri stjórnsýslu, starfsendurhæfingu, áfengis- og vímuefnamálum, farsæld barna og uppeldis- og foreldraráðgjöf frá Háskóla Íslands.
Starfar hjá barnavernd og er fósturforeldri. Vinnur með börnum með fjölþættan vanda.
Hefur leyfi skv. 84. gr. barnaverndalaga nr. 80/2002 og GEV nr. 88/2021.
Kristinn Sævar Magnússon
Rekstrarstjóri
Flugumferðarstjóri hjá Isavia síðan 2017. Réttindi í Norður/Vestur, Suður/Austur, ásamt OJTI.
Starfandi lögreglumaður frá 2013-2018. Lauk Lögregluskóla Ríkisins 2014.
Löggiltur Fasteignasali frá Endurmenntun Háskóla Íslands 2021.
Hefur leyfi skv. 84. gr. barnaverndalaga nr. 80/2002 og GEV nr. 88/2021.
Hafðu samband
Við leggjum ríka áherslu á samvinnu við fjölskyldur og fagfólk til að tryggja velferð ungmennanna
Nánari upplýsingar má fá með því að senda tölvupóst á
hrafnkatla@hrafnkatla.is
eða hringja í símanúmer
772-5330
Staðsetning: Digranesvegur, Kópavogur